Tarotnámskeið
Fjarnám - Bréfaskóli

Áhugavert - Öflugt - Allt árið

Umsagnir nemenda

Frá nemanda 126: "Hæ, og takk fyrir lexíurnar. Það er mjög gaman aða takast á við og lesa þetta efni sem þú ert með en einhvernveginn hefur lexía nr.22 farið fram hjá mér. Gæturðu sent mér hana aftur. Ég tók mér smá pásu á lestrinum um jólin en er kominn aftur á fullt þá kíki ég á allar hinar lexíurnar og rifja upp. Vonandi gengur hinum nemendunum vel."


Frá nemanda 077: "er búin að vera í fjarnámi hjá þér síðastliðin tvo vetur í taroti. Og ætla að skrá mig í þriðja og síðasta hlutann þegar hann byrjar. Ég er mjög ánægð með þetta nám hjá þér, og hef ég verið dugleg að æfa mig á hinum og þessum, og eru allir mjög ánægðir og virðist ég komast að ýmsu sem ég ekki vissi um vinkonurnar."


Frá nemanda 119: "Ég er mjög ánægð með þetta námskeið, og vildi bara segja þér það. Ég bíð spennt eftir hverri sendingu frá þér."


Frá nemanda 011: "Ég var ánægð þegar ég sá auglýsinguna um Tarotnámskeið. Loksins eitthvað bitsætt fyrir mig. Svo ég skráði mig inn og sé ekki eftir því. Sá fróðleikur sem ég hef fengið sendann er alveg frábær." " ...í þessu námi er raunar enginn endir. Þetta nám er mjög góð undirstaða fyrir þá sem hafa áhuga á Tarot eða andlegum málum yfirleitt."

"Það er mjög góð þjálfun að handleika spilin og taka inn það sem þau eru að segja. Mér virðist ekki ætlað að læta utanbókar hvað hvert spil merkir, ég eiginlega skanna þau inn með hendinni og þá er alveg sama hvort þau snúa rétt eða á hvolfi (það er að segja með bakhliðina upp).

Ég velti því fyrir mér fljótlega eftir að ég byrjaði í náminu hvort ég ætti ekki bara að hætta því mér var ómögulegt að læra inn á eitt einasta spil. Ég prófaði að ganga með eitt spil í vasanum sofa með það undir koddanum og auðvitað með ráðningu spilsins með og reyndi að læra rulluna utanað, en ekkert gekk. En ég ákvað að gefast ekki upp."


Frá nemanda 003: "Sumir hlutir hafa verið mér augljósari en aðrir (skiljanlega) en í heild var þetta mjög gaman. Þetta (námskeiðin) hefur verið góður tími, (ég tala bara fyrir mig) ég hef alltaf beðið eftir nýju námsefni, dálítið spennt."


Tarotáhugafólk er hvatt til að fylgja löngun sinni eftir og kynnast Tarotspilunum betur og 'fræðum' þeim tengdum, og þannig stuðla að því að byggja upp íslenskt Tarotsamfélag.       - [ Pöntunarform ]

    - Tarotnámskeið www.tarot.is, eru í boði allt árið -


                Ingibjörg

ritstjóri og leiðbeinandi á Tarotnámskeiði www.tarot.is           




©2004 North & South Web Design