Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

Hvað hefur verið að gerast með hana,
og hvaða möguleika hefur hún 2003?

Ingibjörg Sólrún er átta! Einstaklingur með Lífstöluna 8 er oft valdamikill, sjálfsöruggur og vegnar vel í lífinu. Áttan er mjög sjálfstæð, öflug og samkeppnisfær.

Neikvæð 8 getur verið stjórnsöm og bælt vinnugleði vinnufélaga. Áhersla á velgengni getur orðið þráhyggja.

Árið 2002 er ISG á Persónuári 2 sem þýðir að hún er tiltölulega nýbyrjuð í 9 ára hringrás sem gefur henni ennþá tækifæri til að hefja nýja byrjun. En samt er þetta ár yfirleitt ekki góður tími til að komast sem lengst áfram. Þetta er tími til að "bíða og sjá til." ISG lenti einmitt í þeirri stöðu og tók síðan af skarið við árslok.

Ef einstaklingur er ýtinn á 2. persónuári sínu gæti það orsakað vandamál, og verður hann að vera viðbúinn að þurfa að fara krókaleiðir og vera þolinmóður. Einstaklingur gæti lent í streitu og tilfinningaþrungnum aðstæðum.

Árið 2003 sem 3. Persónuár ISG færir henni tækifæri til öflugs félagslífs, en við slíkar aðstæður gæti hún dreift kröftum sínum á of marga staði og tekið að sér of mörg verkefni. Oft er hætt við að einstaklingur taki rangar ákvarðanir við slíkar aðstæður.

Í desember 2002 var ISG t.d. á 5. persónumánuði sínum, sem er mjög öflug tala, stundum grimmt tímabil. En orkan við 5. persónumánuð virkar þannig á einstakling að hann finnur mikla hvöt til að taka eitthvað nýtt inn í sitt líf.

Ofangreindar upplýsingar eru byggðar á fræðslu á Talnaspekinámskeiði www.tarot.is

Ef þú hefur áhuga á að læra að reikna út hinar ýmsu hagnýtu tölur sem tengjast einstaklingnum og læra að útbúa lífsferilskort, þá getur þú skráð þig á Talnaspekinámskeið