TAROTLESARINN

YrsaBjörg hefur starfað sem tarotlesari og ráðið drauma bæði fyrir unglinga og fullorðna, hér heima og erlendis. Hún er í góðu sambandi við aðra tarotlesara og draumspekinga sem starfa á alþjóða vettvangi.

Kæru viðskiptavinir, ég býð ykkur öll velkomin á tarot.is og veit að margir finna eitthvað við sitt hæfi á þessum vef. Ekki hika við að hringja til að fá tarotlestur eða draumaráðningu. Ég hlakka til að heyra í ykkur sem flestum. Og ekki síður þeim sem þegar hafa hringt. Gaman væri að heyra hvernig gengur hjá ykkur! Það hefur komið mér á óvart hvað draumalíf Íslendinga er ríkt: skýrir og sterkir draumar.

Ég hvet alla þá sem hafa áhuga á dulrænum málefnum að tjá sig á spjallþræðinum. Og ekki síður þá sem líður illa eftir Suðurlandsskjálftana: segið frá því hvernig þið upplifðuð skjálftann. Ég hef þegar sagt eina erlenda skjálftasögu sem er einnig dulræn í senn. Ykkur er líka velkomið að tjá ykkur um "skjálfta" yfirleitt: það sem veldur "skjálfta" í þjóðfélaginu frá degi til dags.

Ég vil nota tækifærið til að þakka vefurunum hjá North & South Web Design fyrir frábært samstarf við gerð vefsíðunnar.

                     YrsaBjörg

P.S. Veit einhver hvar ég get fengið íslensku tarot Víkingaspilin, ný eða notuð? En þessi spil voru gefin út af Betra líf í Kringlunni. YB