TAROTPÓSTURINN NR. 1 - Nóvember 2001

Af hverju getur verið gott að gera mistök í lífinu?
Tarotspilið "Hirðfíflið" er hvatinn að þema þessa pósts:

  Á myndinni* er ung og óreynd manneskja 'á leið út í heim.' Hún starir eins og glópur út í bláinn, með mal sinn á bakinu og hundurinn fylgir auðvitað með.

Glópurinn eða Hirðfíflið er í rauninni til í allt! Hann hefur enga lífsreynslu, veit ekki hvað mistök eru, og er meira en tilbúinn til að skoða heiminn og prófa ýmislegt.

Hann er í rauninni að taka sín fyrstu skref í lífsþroskanum, og á eftir að lenda í ýmsu, bæði jákvæðu og neikvæðu.
(*Myndin af Tarotspilinu tilheyrir Rider-Waite Tarot)



Hér að neðan eru taldar upp 10 ástæður fyrir því að það getur verið jákvætt að gera mistök í lífinu!

10 JÁKVÆÐ ATRIÐI VIÐ AÐ GERA MISTÖK:
  1. ÞÚ FERÐ AÐ HUGSA ÖÐRUVÍSI.
    Eftir að hafa gert mistök ferðu að leita annarra leiða við að leysa (vanda)mál þín. Þetta eru leiðir sem þú hefðir annars aldrei hugsað útí.

  2. ÞÚ LÆRIR AF REYNSLUNNI.
    Ef þú gerir aldrei mistök, muntu aldrei læra hvenær þú ert að gera rétt.

  3. PERSÓNULEIKI ÞINN ÞROSKAST.
    Þú ferð að átta þig á hvernig þú vilt í rauninni vera og hvernig þú vilt koma fram.

  4. MISTÖK STYRKJA ÞÍNAR STERKU HLIÐAR.
    Og í leiðinni veikja þínar veiku hliðar.

  5. ÞÚ VERÐUR HEIÐARLEGRI VIÐ SJÁLFAN ÞIG.
    Þú lærir að réttlæta það sem þú ert að gera og af hverju þú gerir það. Sem sagt, þú lærir að vera sáttari við sjálfan þig.

  6. ÞÚ FÆRÐ HARÐARI SKRÁP.
    Skoðaðu lífið og tilveruna sem verkefni en ekki vandamál. Það verður ekki lagt meira á þig en þú getur afborið.

  7. VELGENGNI Í BYRJUN GETUR ÞÝTT FALSKT SJÁLFSÖRYGGI.
    Farðu hægt af stað, ekki ætla þér um of. Góðir hlutir gerast hægt. Fólk og fyrirtæki sem hafa farið af stað með miklum fyrirgangi og háleitum markmiðum fá oftar en ekki hrapalega lendingu.

  8. MISTÖK HVETJA TIL BETRUMBÓTA OG BETRA SKIPULAGS.
    Ef þú gerir mistök, varaðu þig á að hjakka í sama farinu og gera sömu mistökin aftur og aftur. Reyndu betrumbætur og finndu leiðir til að skipuleggja líf þitt betur. Mistök eru í rauninni tæki fyrir þig til að finna út hvað virkar ekki!

  9. MISTÖK OPINBERA VEIKLEIKA ÞÍNA.
    Ekki láta aðra gera hluti sem þú ert ekki góður í. Reyndu heldur að læra og tileinka þér þínar eigin aðferðir við það sem þú heldur að þú getir ekki.

  10. VELGENGNI ER AFSTAÐA - MISTÖK ERU VOGARSTÖNG.
    Stefndu að því að vegna vel á öllum sviðum og láttu mistök þín þjóna þér sem kennslutæki í því sem betur má fara.

YrsaBjörg, spá- og leiðsagnarmiðill www.tarot.is