TAROTPÓSTURINN NR. 8 - janúar 2003

Glætan - Tarotspilið Diska Fimman
Alheimsárið 2003 tengist tölunni 5. Þegar ár felur þessa tölu í sér, getur árið orðið erfitt, bæði á alþjóðlegum vettvangi, sem og í einkalífi. En þetta er einnig ár nýjunga og tímabil sem hvetur þig til að hleypa nýjum þáttum inn í líf þitt.

Tarotspilið hér að neðan sýnir tvo einstaklinga sem eru lasnir, krókloppnir, hungraðir, þreyttir og fátækir. Spilið á að sýna okkur hvernig tilfinning það er að vera allslaus - að hafa ekki til hnífs og skeiðar, þ.e. þessa grundvallarþætti í lífinu. Þetta þurfa margir að upplifa í heiminum í dag. Þetta er raunveruleiki sem kallar á aðgerðir. Þeir sem eru heppnir hafa e.t.v. aldrei þurft að upplifa slíkar öfgar, en við könnumst við þá þjáningu að þegar við höfum ekki það sem okkur langar í, eða vanhagar um, þá þjáumst við.

  Þessi fimma er tákn um skort á veraldlegum gæðum, en hún hefur einnig andlega tengingu. Af steinda glugganum á myndinni að dæma, eru þessir einstaklingar staddir fyrir utan kirkju. Þægindin eru sem sagt innan seilingar, en þessir einstaklingar koma ekki auga á möguleikana og hvað lífið hefur uppá að bjóða.

Kirkjan er tákn um andlegt líf okkar og við fæðumst í þennan heim með frjálsan vilja. Í hvert skipti sem þú upplifir erfiðleika, þá skaltu vera þess meðvitaður að þeir eru yfirstíganlegir.

Leitaðu því að andlegu musteri, sem er þér að skapi, þar sem tekið verður á móti þér og þér veitt húsaskjól. Það er alltaf til vonarglæta!

Byggt á fræðslu frá Tarotnámskeiði www.tarot.is
Tarotspil: Diska (Skildinga) Fimman úr Rider-Waite Tarot.


Hvað er fátækt?

Einn 'góður' pabbi býður syni sínum, unglingnum, í bíltúr. Þessi faðir er mjög efnaður og aka þeir feðgarnir upp í sveit. Markmiðið með bíltúrnum er að sýna syninum raunverulega fátækt, eins og hún er, hér og nú.

Þeir dvelja á bóndabýli í nokkra daga hjá fjölskyldu sem myndi flokkast sem 'fátækt fólk.'

Á heimleiðinni fer pabbinn að spjalla við soninn og spyr: "Hvernig fannst þér svo að vera þarna?"
"Pabbi, þetta var æðislegt" segir stráksi.
"Tókstu þá eftir því hvernig alvöru fátækt fólk er?" spyr pabbinn.
"Já, já" segir strákur.
"Fannst þér þú þá læra eitthvað, að hafa dvalið hjá fólkinu?"
Sonurinn svarar: "Sko, við eigum einn hund, pabbi. En þau eiga FJÓRA. Og við erum með eina sundlaug í garðinum hjá okkur, sem nær inn í miðjan garðinn, ha, en ég meinaða sko, það er lækur hjá þeim sem nær ég veit ekki hvert. Eitthvað út í buskann. Eitthvað langt, langt. Svo erum við með tilbúnar luktir í garðinum hjá okkur, sko. Luktir sem voru keyptar í búð. En þau! Þau hafa sko, garðurinn hjá þeim er upplýstur frá a-ö með stjörnunum frá himninum.
Vá! Og pabbi, í okkar garði er göngustígur sem liggur að aðalinnganginum á okkar húsi, en veistu hvernig þetta er hjá þeim? Þau hafa allan sjóndeildarhringinn! Okkar lóð er örfáir fermetrar, en lóðin hjá þeim eru sko margir hektarar.
Pældíði pabbi! ... frh.

=========================================

ALVÖRU SVEITASÆLA
Glæsilegt tjaldstæði við fossinn Faxa í Biskupstungum.
Best varðveitta leyndarmálið í bransanum.
Símar: 486-8710 og 848-1101
http://www.heidi.is

=========================================

.. frh.
Og svo höfum við þjón og au-pair heima og konu sem kemur og þrífur hjá okkur. En þau þjóna öðrum. Og við þurfum alltaf að fara í mollið og kaupa í matinn og svoleiðis, en þau hafa þetta allt við hendina. Þau framleiða sinn eiginn mat.
Já, og svo er öryggisgirðing kringum garðinn hjá okkur. Svaka dæmi maður. En þau? Þau hafa öryggi af nágrönnum sínum. Þetta eru sko vinir þeirra.

Pabbinn er orðlaus. Og svo bætir sonurinn við: "Pabbi, þakka þér kærlega fyrir að sýna mér hversu miklir mega-fátæklingar við fjölskyldan erum."

Þýtt úr ensku: e4u Newsletter - Resource Center - http://starterkithaven.com
Sharon Lambkin útgefandi.


YrsaBjörg, spá- og leiðsagnarmiðill www.tarot.is